|

|
|
|
|
Stigahćđstu sýningarhundar PMF deildarinnar |
|
miđvikudagur, 09 desember 2009 |
|
Árið 2009 var mjög gott fyrir Dobermann tegundina á sýningarvettvangi HRFÍ. Núna hefur HRFÍ birt listann yfir stigahæðstu sýningarhunda ársins og er virkilega gaman að því að tveir Dobermann hundar komust þar á lista. Pabbi "V" gotsins okkar hann Arkan di Altobello gerði sér lítið fyrir og varð 7. stigahæðsti sýningarhundur ársins og hann Ægishjálms Galdurs Þrymur "Púki" varð 15. stigahæðsti hundur ársins. Það verður virkilega gaman að fylgjast með þessum flottu hundum á nýju sýningarári 2010. En við fengum fleiri góðar fréttir á dögunum þar sem að PMF deildin heiðraði stigahæðsta sýningarhund og stigahæðsta hvolp deildarinnar. Þar varð Arkan aftur efstur á blaði í flokki fullorðinna hunda og hinn ungi og efnilegi Ægishjálms Galdurs Váli "Flex" varð stigahæðsti hvolpur deildarinnar. Við erum að vonum yfir okkur montinn með árangur þessara glæsilegu fulltrúa tegundarinnar og viljum óska eigendum þeirra innilega til hamingju með þennan frábæra árangur. En við höfum verið í vandræðum með að setja inn myndir á síðuna en vonandi verður leist úr því von bráðar |
|
Síđast uppfćrt ( miđvikudagur, 09 desember 2009 )
|
|
|
mánudagur, 10 ágúst 2009 |
|
Allir hvolparnir hafa fengið góð heimili og við hlökkum til að fá að fylgja þeim eftir um ókomna tíð.
|
|
|
laugardagur, 15 ágúst 2009 |
|
Í dag fóru 4 Ægishjálmshundar í skapgerðarmat "MH" hjá HRFÍ. Matsmaður var Albert Steingrímsson og skemmst er frá því að segja að þau Þengill, Þjarkur, Þrymur og Þökk stóðust öll án athugasemda. Við erum að vonum mjög ánægð með þennan árangur og óskum eigendum þeirra innilega til hamingju með að hafa lokið þessum áfanga.
|
|
|
Glćsilegur árangur á haustsýningu |
|
mánudagur, 05 október 2009 |
|
Þá er glæsilegri haussýtningu HRFÍ lokið og stóðu hundarnir frá Ægishjálmsræktun sig alveg frábærlega. Ægishjálms Galdra Þrá var sýnd í meistaraflokki og varð besta tík tegundar og hlaut CACIB, við óskum Hörpu og Ottó innilega til hamingju með þessa glæsilegu tík. Ægishjálms Galdurs Váli "Flex" steig sín fyrstu skref í sýningarhringnum á þessari sýningu og varð besti hvolpur tegundar og bætti svo um betur og varð 3. besti hvolpur sýningar og óskum við Huldu og Elís innilega til hamingju með þennan glæsilega unga hund og verður gaman að fylgjast með honum í framtíðinni. En það er líka gaman að segja frá því að hann Arkan di Altobello sem er pabbi hvolpanna úr "V" gotinu gerði sér lítið fyrir og vann tegundarhóp 2 og var hann glæsilegur fulltrúi sinnar tegundar þennan dag og óskum við Hildu og Björgvin innilega til hamingju með þennan glæsilega hund. Allir hundarnir sem voru sýndir frá okkur þennan dag stóðu sig með stakri prýði og viljum við þakka eigendum þeirra innilega fyrir frábæran dag. |
|
Síđast uppfćrt ( miđvikudagur, 28 október 2009 )
|
|
|
Smá hvíld eftir góđa ćfingu |
|
sunnudagur, 19 júlí 2009 |
|
|
|
Ćgishjálms Galdurs Ţjarkur HD-A |
|
miđvikudagur, 15 júlí 2009 |
|
Þann 7. júlí bárust niðurstöður úr mjaðmamyndum á Ægishjálms Galdurs Þjark og er skemmst frá því að segja að hann er HD-A. Við óskum eiganda hans honum Jóni innilega til hamingju með þessar niðurstöður. Þá hafa allir hvolparnir hér heima úr Þ gotinu verið myndaðir og eru þeir allir HD-A
|
|
|
Nýjar myndir af hvolpunum |
|
sunnudagur, 05 júlí 2009 |
|

|
|
Síđast uppfćrt ( sunnudagur, 05 júlí 2009 )
|
|
|
Ćgishjálms Galdurs Ţrymur BOB og BOG2 |
|
sunnudagur, 05 júlí 2009 |
|
Sumarsýning HRFÍ var haldin helgina 28. - 29. júní og með gleði segjum við frá því að Ægishjálms Galdurs Þrymur "Púki" varð "BOB" besti hundur tegundar ásamt þvi að hljóta íslenskt meistarastig "CAC" Hann bætti svo um betur og varð BOG2 eða í öðru sæti í tegundarhóp 2 þar sem að 18 hundar kepptu til úrslita.
Við óskum eigendum Púka þeim Hörpu og Ottó innilega til hamingju með árangurinn og verður gaman að fylgjast með þessum efnilega unga hundi í framtíðinni. |
|
Síđast uppfćrt ( sunnudagur, 05 júlí 2009 )
|
|
|
fimmtudagur, 25 júní 2009 |
|
|
Síđast uppfćrt ( fimmtudagur, 25 júní 2009 )
|
|
|
Frábćr árangur í úrtökumóti til Íslandsmeistara |
|
mánudagur, 22 júní 2009 |
|
Dobermann Ísland hélt 1. úrtökumót til Íslandsmeistara núna á sunnudaginn var. Skemmst er frá því að segja að Karen og Lísa tóku þátt og náðu þeim góða árangri að verða í fyrsta sæti með 190 stig af 200 mögulegum í hlýðni 1 en Monika Karlsdóttir dæmdi og með þessu hafa þær unnið sér inn þátttökurétt á Íslandsmeistaramótinu í september.
Við segjum einnig frá því með stolti að í hlýðni brons tóku þátt tveir efnilegir rakkar úr Þ gotinu okkar þeir Þengill "Gutti" og Þrymur "Púki", þeir gerðu sér lítið og lentu í öðru og þriðja sæti. Gutti skoraði 146 stig og Púki 127 stig og náðu með því báðir að tryggja sér þátttökurétt á Íslandsmeistaramótinu. Við óskum eigendum þeirra ynnilega til hamingju með þennan frábæra árangur og hlökkum til að fylgjast með þeim í næstu prófum. En það eru nokkrar myndir frá prófinu í myndasafninu undir "Got Þ ýmsar myndir" og einnig í möppunni hennar Lísu.
|
|
Síđast uppfćrt ( fimmtudagur, 25 júní 2009 )
|
|
|
Nýjar myndir af hvolpunum |
|
mánudagur, 22 júní 2009 |
|
Það eru komnar nýjar myndir af hvolpunum í myndasafnið. Hvolparnir eru núna að skríða í þriggja vikna aldurinn og orðnir ansi kröftugir. Lína má hafa sig alla við að hugsa um þau og tvífætlingarnir á heimilinu hafa líka í nægu að snúast. Endilega kíkið við í myndasafnið og ekki er verra ef þið kvittið fyrir komuna í gestabókina:) Með kveðju Karen, Unnar, Lína og skottin
|
|
| << Byrja < Fyrri 1 2 3 4 Nćsta > Endir >>
| | Úrslit 1 - 11 af 43 |
 |

|
|
|
|