|
Við fluttum inn tíkina okkar hana Fanta di Altobello "Línu" árið 2005. Hún kom úr einangrun í júní það ár og var eftirvæntingin mikil þegar hún var sótt í Hrísey. En Fanta "LÍna" er afrakstur tæplega árs leitar eftir tík til influtnings. Síðan við fengum hana í hendurnar þá hefur margt breyst í okkar hundahaldi en við eignuðumst okkar fyrsta dobermann hund árið 1993 og var það jafnframt fyrsti dobermann hundurinn sem kom inn í landið úr einangrun. Hún Tania okkar var aldrei skráð hjá HRFÍ enda fyrst og síðast gæludýrið okkar og félagi. Tania var alveg stórkostlegur hundur sem var einstaklega þægileg í umgengni og afskaplega hlýðin. Hún var notuð í veiði með ágætum árangri og það er fyrst og fremst henni að þakka hve heilluð við urðum af þessari frábæru tegund. Tania fæddist 15. april 1993 og dó 30. maí 2004 þá rúmlega 11 ára að aldri. 2001 eignuðumst við svo dobermann karlhundinn Blandon von Hoytts Tuma. Thomas eins og við kölluðum hann, en hann hafði verið á hrakhólum þegar hann endaði loks hjá okkur. Thomas var alveg stórkostlegur hundur sem veitti okkur mikla gleði og hann og Tania urðu miklir félagar. Með Thomasi fóru hlutirnir smátt að breytast hjá okkur varðandi hundahald. Við skráðum okkur í HRFÍ og tókum að kynna okkur hvað var að gerast hjá félaginu. Við fórum í skapgerðarmat "MH" með hann og sóttum námskeið í hlýðni með fínum árangri og fórum að skoða þessi mál í víðara samhengi en bara að eiga hund sem gæludýr. Thomas dó 14. ágúst 2004 aðeins 4 1/2 mánuðum eftir Taniu og var sorgin mikil. En í júní 2004 skömmu áður en Thomas dó höfðum við tekið að okkur 6 vikna gamlan dobermann karlhund úr óskráðu goti þar sem að hans beið ekkert nema svæfing, ef ekki fyndist gott heimili handa honum. Sá litli pjakkur fékk nafnið Tindur og er að okkur vitandi eini blái dobermann hundurinn á landinu. Tindur er mikill gleðigjafi og afskaplega kátur hundur, það var mikil huggun að hafa hann eftir að hafa hvatt hin tvö með svo stuttu millibili. Við höfum verið dugleg að æfa og brasa ýmislegt með Tindi í þessi tæpu þrjú ár sem hann hefur lifað og er ætlunin að halda því áfram, en hann er geldur og því ekki nokkrar áhyggjur að hafa yfir því að hann skili sínu bláa geni neitt áfram enda ekki með ættbók og fyrst og síðast félagi okkar. Eftir að hafa fengið Föntu "Línu" til okkar tókum við endanlega þá ákvörðun að hella okkur út í þetta hundastúss af fullri alvöru. Við skráðum hana í HRFÍ þegar hún kom til landsins og höfum verið duglega að taka þátt í því sem félagið hefur upp á að bjóða þá bæði fyrir okkur eigendurna og einnig í sýningum á vegum félagsins þar sem að gengi Föntu "Línu" hefur verið afar gott. Úr varð að við sóttum svo um ræktunarnafnið Ægishjálms hjá FCI og var það samþykkt þann 23.05.2005.
Í dag eigum við 4 hunda, 3 dobermann hunda og einn standard schnauzer og er takmark okkar að rækta fallega, geðgóða, heilbrigða og vinnuglaða hunda sem henta jafnt sem fjölskyldu-, vinnu- og sýningarhundar. En fyrst og síðast er þetta áhugamálið okkar og mikil gleðigjafi í okkar lífi. Við getum ekki hugsað okkur að hafa heimili okkar hundlaust og vonandi verður það alltaf þannig. Við leggjum metnað okkar í að auka veg og virðingu tegundarinnar og erum aðilar að HRFÍ og vinnum eftir reglum þeirra í okkar ræktun, jafnframt því að kynna okkur vel hvað er að gerast í dobermann tegundinni í kringum okkur og reynum eftir bestu getu að vera ávallt með á nótunum varðandi heilsufar og almennrar krafa til tegundarinnar. Ef það eru einhv. spurningar þá endilega hafið samb. á e-mail
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
eða í síma 544 4848 og við munum reyna að aðstoða eftir bestu getu. Með dofrakveðju Unnar Már og Karen Ægishjálms ræktun
|