spacer.png, 0 kB
V got
sunnudagur, 07 júní 2009

 

 

 

 

 

 

 

 

Það eru komnar nokkrar myndir í galleryið af hvolpaskottunum.

 
Fæddir hvolpar
föstudagur, 05 júní 2009

Tíkin okkar hún Fanta di Altobello "Lína" fæddi á þriðjudaginn 2. júní 8 spræka hvolpa sem skiptast í 3 tíkur og 5 rakka sem allir hafa þegar hlotið nafn.  Stafurinn "V"  varð fyrir valinu í þetta skiptið og heita tíkurnar Vé, Von og Víg en rakkarnir eru þeir Váli, Vigri, Vopni, Væringi og Vestri. 

Móður og hvolpum heilsast vel og nú taka spennandi tímar við hjá okkur hér á Fífuvöllunum við að koma þessum krílum á legg.

 Hér kemur smá kynning á stoltum foreldrum ásamt ættbók gotsins:


  

Arkan di Altobello

  

 Fanta di Altobello

ScgCh, BihCh, MacCh, IsCh, IntCh
  BihCh, IsCh, IntCh
BH, IPO I, HD B, Eyes clear, vWd clear
  MH,  IPO I, HD A, Eyes clear, vWd clear Thyroid normal

 


Síðast uppfært ( föstudagur, 05 júní 2009 )
 
Paradise di Altobello frí í augum
laugardagur, 09 maí 2009

Paradise di Altobello "Lísa" var augnskoðuð í dag, hún fékk frábæra skoðun og er frí í augum.  

Paradise di Altobello er því HD-Free, augu frí og arfhrein af vWd blæðarasjúkdómnum og við eigendurnir mjög ánægð með liltlu prinsessuna.

Síðast uppfært ( laugardagur, 09 maí 2009 )
 
Væntanlegir hvolpar
sunnudagur, 03 maí 2009

Það er búið að para tíkina okkar Fanta di Altobello "Línu" við Arkan di Altobello og er staðfest að það eru væntanlegir hvolpar í byrjun júní. 

Fanta er bosnískur, íslenskur og alþjóðlegur meistari og hefur lokið MH skapgerðarmati, BH og IPO I.  Hún er frí í mjöðmum, augum, arfhrein fyrir vWd blæðarasjúkdómnum og skjaldkirtilsprófuð í lagi.  Arkan er serbneskur, bosnískur, makedónískur, íslenskur og alþjóðlegur meistari.  Hann hefur lokið BH og IPO I og er frír í mjöðmum, augum og arfhreinn fyrir vWd blæðarasjúkdómnum.

 Víð hvetjum áhugasama til að senda póst á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það eða í síma 770 3750

 

Síðast uppfært ( sunnudagur, 03 maí 2009 )
 
Mjaðmamyndaniðurstöður
mánudagur, 27 apríl 2009

Það voru að berast niðurstöður úr mjmaðmamyndurm fyrir hana Ægishjálms Galdra Þrá og með stolti segjum við frá því að hún er HD-A.  Það er því búið að mynda 4 af 5 Ægishjálms hvolpunum sem eru hér heima og eru allir HD-A.  Við viljum óska eiganda Þráar til hamingju með niðurstöðurnar.

Síðast uppfært ( sunnudagur, 03 maí 2009 )
 
Got "Þ" tveggja ára í dag
þriðjudagur, 03 febrúar 2009

 Ægishjálms got "Þ" er 2 ára í dag.  Við viljum óska þeim og eigendum þeirra innilega til hamingju með daginn og þakka fyrir frábær 2 ár. 

 Við gætum ekki verið ánægðari með hversu vel er hugsað um hvolpana og teljum okkur einstaklega lánsöm að hafa fengið að fylgja þeim svona eftir eins og raun hefur verið síðustu 2 ár.

Myndin er tekin af þeim þegar þau voru að stíga sín fyrstu skref út í hinn stóra heim :)  Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt og er nýrri mynd af þeim væntanleg innan skamms.

Með afmæliskveðju

Karen, Unnar og Lína mamma 

 

Síðast uppfært ( þriðjudagur, 03 febrúar 2009 )
 
Frábærar fréttir
fimmtudagur, 15 janúar 2009

 Við vorum að fá þær frábæru fréttir að niðurstöður úr mjaðmamyndum fyrir Ægishjálms Galdurs Þengil "Gutta", Ægishjálms Galdurs Þrym "Púka" og Ægishjálms Galdra Þökk "Össu" eru komnar í hús og með gleði segjum við frá því að þau eru öll HD-A.

Við viljum óska eigendum þeirra innilega til hamingju með niðurstöðurnar.

 

 

Síðast uppfært ( fimmtudagur, 15 janúar 2009 )
 
Gleðilegt ár
fimmtudagur, 08 janúar 2009
Síðast uppfært ( fimmtudagur, 08 janúar 2009 )
 
Paradise di Altobello vWd clear
miðvikudagur, 26 nóvember 2008

 Niðurstöðurnar ú vWd testinu bárust í dag og erum við afar ánægð með að Paradise "Lísa" er clear. 

Ég og Lísa tókum líka þátt í okkar fyrsta vinnuprófi saman nú í nóv. og gekk bara fínt.  Hundaskólinn Hundalíf var með próf í Hlýðni 1 og ákváðum við að taka þátt á síðustu stundu.  Mér til mikillar gleði gekk okkur svo bara glimrandi vel en við skoruðum 165,5 stig hjá dómaranum Line Sæther frá Noregi sem þýddi að við fórum þar með inn á fyrstu einkunn.

En það var virkilega gaman að taka þátt og ætlum við að reyna að gera enn betur í næsta próifi sem við tökum þátt í.

Kv.  Karen

Síðast uppfært ( miðvikudagur, 26 nóvember 2008 )
 
Ægishjálms Galdra Þrá BOB
föstudagur, 18 júlí 2008

Við segjum með stolti frá því að skottan okkar hún
Ægishjálms Galdra Þrá gerði sér lítið fyrir og varð
BOB "Best of breed" á sumarsýningu HRFÍ þann 28.
júní síðastliðinn og nældi sér jafnframt í
íslenskt meistarastig "CAC".

Við óskum eiganda hennar Margréti Gísladóttur
innilega til hamingju með árangurinn og verður
gaman að fylgjast með þessari ungu tík í
framtíðinni.

Kv.
Karen

Síðast uppfært ( föstudagur, 18 júlí 2008 )
 
Paradise di Altobello orðin serbneskur meistari
mánudagur, 05 maí 2008
 Þann 4. maí tók Paradise di Altobello
þátt í CAC sýningu í Backa Palanka í
Serbíu.  Hún hlaut EX-1 CAC og
innsiglaði með þessu serbneska
meistaratitilinn sinn og er nú bæði
serbneskur og bosnískur meistari.

Við erum hæst ánægð með árangurinn
og Dejan Malbasa ræktandi Paradise
ásamt Silviu Kovach þjálfara hennar
eiga miklar þakkir skilið fyrir þann
frábæra árangur sem þessi unga tík
hefur náð.

Síðast uppfært ( mánudagur, 05 maí 2008 )
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 Næsta > Endir >>

Úrslit 12 - 22 af 43
spacer.png, 0 kB
spacer.png, 0 kB
 
Ægishjalms.com Afritun óheimil nema með leifi vefstjóra
download joomla modules download joomla modules